Námskeið fyrir fatlaðar konur: Fötlunarfordómar, kynjamisrétti og mannréttindabarátta Námskeiðið er samstarfsverkefni Tabú og Kvennahreyfingar ÖBÍ. Fjallað verður um áhrif og afleiðingar fötlunarfordóma, kynjamisréttis, klámvæðingar og ofbeldis á líkamsímynd, kynverund og stöðu mannréttinda fatlaðra kvenna. Markmið námskeiðsins að skapa öruggt rými fyrir fatlaðar konur svo við getum deilt reynslu okkar án þess að eiga í hættu á að vera gagnrýndar eða stimplaðar. Einnig að undirbúa okkur fyrir aktivisma til þess að sporna gegn jaðarsetningu og mismunun fatlaðra kvenna.
Umsjón: Emblu Guðrúnar Ágústsdóttur og Freyju Haraldsdóttur
Tímabil: 22. september til 24. nóvember.
Staðsetning: Háskólanum í Reykjavík kl. 19:00-22:00.
Námskeiðsverð: 10.000 kr.
Comments