top of page

Neyðarsöfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu


Myndlýsing: Á myndinni stendur með gulum og bláum stöfum á hvítum fleti „Fatlað fólk í Úkraínu treystir á þig“. Í bakgrunni er mynd af úkraínskum unglingsdreng sem liggur í neðanjarðarbyrgi og horfir á iPad. Á myndinni eru reikningsupplýsingar fyrir millifærslur. Neðst á hvítum fleti eru merki hreyfinganna sem standa að söfnuninni.

Samtökin Tabú, Öryrkjabandalag Íslands, Þroskahjálp og Átak - félag fólks með þroskahömlun hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu.

Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og staða þess í Úkraínu grafalvarleg. Margt fatlað fólk getur ekki flúið land og getur illa orðið sér út um mat, lyf og aðrar nauðsynjar. Einnig aukast líkur á ofbeldi, að fatlað fólk verði skilið eftir og að það sé án aðstoðar og stuðnings. Ástandið versnar dag frá degi og árásir rússneskra stjórnvalda á óbreytta borgara í Úkraínu halda áfram.


Hreyfingarnar, sem allar vinna að réttindum fatlaðs fólks, hafa því sett af stað sameiginlega söfnun til þess að koma fjármagni til fatlaðs fólks og tryggja þeim aðstoð á staðnum. Öll framlög munu renna beint til neyðaraðstoðar fyrir fatlað fólk í Úkraínu, milliliðalaust.


Þú getur millifært á: Kt. 521176-0409 Reikningur: 526-26-5281

7 views

Comments


bottom of page