Starfsemi Tabú
Opin skrifstofa
Tabú er með opin skrifstofutíma á þriðjudögum frá 14-17 í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42.
Skrifstofa Tabú er staðsett á fyrstu hæð á A gangi. í móttökunni tekur gott fólk á móti þér og getur náð í okkur til þess að taka á móti þér. Aðgengislýsingu á mannréttindahúsinu má finna hér: https://mannrettindahusid.is/adgengi-mannrettindahusid/

Jafningjahópar
Tabú býður upp á opna jafningjahópa að jafnaði einu sinni í mánuði.
Jafningjaráðgjöf og stuðningur á rætur sínar að rekja til valdeflingarstarfs fólks með geðrænanar áskoranir og hefur einnig verið notuð í ýmsum jaðarsettum hópum til þess að skapa öruggara og hugrakkara rými til samtals, speglunar og fræðslu fyrir fólk í sambærilegri stöðu. Jafningjaráðgjöf er einn af hornsteinum hugmyndafræði mannréttindabaráttu fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og er álitin ein mikilvægasta leiðin til valdeflingar og sjálfræðis fyrir fatlað fólk. Þar er fatlað fólk álitið sérfræðingar í eigin lífi og með dýrmæta þekkingu á þeim hindrunum sem við mætum og hvernig við tæklum þær. Jafningjastuðningur kemur ekki staðin fyrir sálfræðiaðstoð en getur verið góð byrjun og/eða sjálfsvinna samhliða henni, sem og ein og sér.

Jafningjanámskeið fyrir fatlað fólk
Tabú hefur haldið jafningjanámskeið fyrir fatlað og langveikt fólk.
Á námskeiðunum fjöllum við um það hvernig okkur líður þegar réttindi okkar eru brotin vegna þess að við erum fötluð og/eða langveik og mögulega einnig vegna annarra þátta, t.d. af því að við erum hinsegin, af erlendum uppruna, fátæk eða kynsegin.
Á námskeiðunum viljum við að þátttakendur geti talað um tilfinningar sínar og reynslu án þess að vera hrædd um hvað öðrum finnst og án þess að verða fyrir fordómum. Við viljum líka að þátttakendur fái meira hugrekki til þess að segja hvað þeim finnst, vera baráttufólk og breyta samfélaginu.
Við leggjum áherslu á að engin manneskja er of mikið eða of lítið fötluð/langveik til þess að taka þátt í jafningjanámskeiðum Tabú.
Það kostar ekkert að taka þátt á námskeiðunum.



Tabú veitir ýmiss konar faglega ráðgjöf
Fagleg ráðgjöf getur t.d. verið:
-
Yfirlestur gagna
-
Einstaklingsráðgjöf til fagfólks eða annarra
-
Ráðgjöf varðandi stefnumótun
-
Álitsgjöf til fjölmiðla
Fagleg ráðgjöf
Tabú býður upp á fræðsluerindi
og styttri námskeið fyrir stóra og
smáa hópa
Fræðslan getur t.d. snúið að:
-
Ableisma - fötlunarfordómum
-
Margþættri mismunun
-
Sálrænum afleiðingum misréttis
-
Ofbeldi gegn fötluðu fólki
-
Fötlun og kynlífi
-
Stöðu fatlaðra mæðra
