top of page

Skráning hafin á Jafningjanámskeið fyrir fatlað og langveikt fólk - öll kyn

Jafningjanámskeið Tabú eru 8 vikna námskeið fyrir fatlað og langveikt fólk. Námskeiðin eru styrkt af félags- og dómsmálaráðuneyti og eru einn liður í aðgerðum stjórnvalda gegn ofbeldi á tímum Covid-19. Á námskeiðunum fjöllum við um það hvernig okkur líður þegar réttindi okkar eru brotin vegna þess að við erum fötluð og/eða langveik og mögulega einnig vegna annarra þátta, t.d. af því að við erum hinsegin, af erlendum uppruna, fátæk eða kynsegin. ​​ Á námskeiðunum viljum við að þátttakendur geti talað um tilfinningar sínar og reynslu án þess að vera hrædd um hvað öðrum finnst og án þess að verða fyrir fordómum. Við viljum líka að þátttakendur fái meira hugrekki til þess að segja hvað þeim finnst, vera baráttufólk og breyta samfélaginu. Við leggjum áherslu á að engin manneskja er of mikið eða of lítið fötluð/langveik til þess að taka þátt í jafningjanámskeiðum Tabú.

Það kostar ekkert að taka þátt á námskeiðunum.

Næsta jafningjanámskeið Dagsetningar: 6. október - 24. nóvember '21 Hvenær: Á miðvikudagskvöldum kl. 19:00-22:00 Fyrir: Fatlað og langveikt fólk - öll kyn velkomin Staður: Reykjavík - möguleiki á þátttöku í gegnum fjarfundabúnað Umsjón: Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Margrét Ýr Einarsdóttir Hámarksfjöldi: 10 þátttakendur


Skráningu lýkur 20. september!

44 views

Recent Posts

See All
bottom of page