top of page
  • Facebook
  • Twitter
  • Instagram

Styrkveiting til Tabú

  • Mar 31
  • 1 min read

Á dögunum veitti félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, alls 20 styrki til félagasamtaka sem starfa á málefnasviði félags- og húsnæðismálaráðuneytisins. Tabú hlaut rekstrarstyrk til tveggja ára, 2.820.000 kr á ári. 


Styrkurinn er Tabú dýrmætur þar sem hingað til höfum við rekið starf okkar að mestu á sjálfboðaliðastarfi og verkefnastyrkjum. Tryggir styrkurinn betur okkar grunnstarf sem snýr að jafningjafræðslu og -stuðningi, og vitundarvakningu. Einnig munum við áfram geta verið með skrifstofu og vinnurými hjá Mannréttindahúsinu sem er nauðsynlegt til þess að bjóða upp á gott aðgengi, þátttöku fjölbreyttari hóps og skref í átt að sjálfbærni fyrir feminísku fötlunarhreyfingar okkar.


Við óskum öðrum styrkhöfum innilega til hamingju.


bottom of page