Umsögn Tabú um drög að tillögu forvarnaráætlunar

Tabú hefur sent inn umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um forvarnaráætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni meðal barna og ungmenna, fyrir árin
2026-2030 (mál nr. S-10/2026). Sjá umsögn.
Í umsögninni er athygli vakin á að það skýtur skökku við að stjórnvöld leggi fram þingsályktun um forvarnaáætlun gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni meðal barna og ungmenna, á sama tíma og byggð er brottfararstöð á Íslandi fyrir fólk í leit að vernd, meðal annars börn. Hafa sérfræðingar í barnaverndarmálum og málum barna gagnrýnt að slíkt úrræði sé í líkingu við að fangelsa börn. Einnig kemur tillagan fram á sama tíma og stjórnvöld tala niður mannréttindi fatlaðra barna og annarra jaðarsettra barna til inngildandi skyldubundins skólastarfs. Hvort tveggja hefur það í för með sér að fötluð börn á flótta og fötluð grunnskólabörn eigi nú að vera sett í aðstæður sem rannsóknir og sögulegar heimildir sýna að útsetji þau fyrir hverskyns ofbeldi. Við hjá Tabú eigum erfitt með að taka alvarlega þingsályktun sem þessari þegar hún er í hrópandi mótsögn við orð og gjörðir sömu stjórnvalda. Við veltum fyrir okkur vægi umsagna hagsmunahópa í ljósi þess að enn gilda allar athugasemdir umsagnar Tabú úr fyrri forvarnaráætlun 2021-2025.




